Fréttir af ársfundi Stapa

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn í gær, mánudaginn 27. apríl í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf og var mæting mjög góð. Fundarstjóri var Aðalsteinn Baldursson.

Björn Snæbjörnsson, stjórnarformaður hóf fundinn á skýrslu stjórnar en Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri fór því næst yfir ársreikning og áritanir auk þess að gera grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins sem var jákvæð um 4,1% í árslok. Áður en Jóhann Steinar lauk máli sínu fór hann yfir stöðu og fyrirhugaða endurskipulagninu á örorkulífeyriskerfinu.

Óli Þór Birgisson, forstöðumaður eignastýringar, fór því næst yfir fjárfestingarstefnu og ávöxtun það sem af er ári 2026. Að því loknu fór Jóhann Steinar yfir hluthafastefnu sjóðsins. 

Hægt er að kynna sér upplýsingar um rekstur, ávöxtun og eignir sjóðsins í ítarlegum ársreikningi og ársskýrslu fyrir árið 2025, sem lögð voru fram og kynnt á fundinum. Glærur fylgja einnig hér neðst ásamt öðrum gögnum.

Næst var stjórnarkjöri lýst en stjórn sjóðsins var kosin á fulltrúaráðsfundi sjóðsins þann 9. apríl síðastliðinn.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs skipa í dag:

Frá launamönnum:
Björn Snæbjörnsson (varaformaður), Ásdís Sigurjónsdóttir, Guðný Hrund Karlsdóttir og Þórarinn Sverrisson.

Varamenn: Rósfríð Kristín Áslaugsdóttir og Birkir Snær Guðjónsson

Frá launagreiðendum:
Elsa Björg Pétursdóttir (stjórnarformaður), Guðrún Ingólfsdóttir, Kristinn Kristófersson og Tryggvi Þór Haraldsson.

Varamenn: Erla Jónsdóttir og Páll Snorrason.

Á fundinum lagði stjórn Stapa til að KPMG ehf. verði endurskoðunarfyrirtæki sjóðsins á árinu 2026 og að Ragna Hrund Hjartadóttir yrði utanaðkomandi aðili í endurskoðunarnefnd. Hvort tveggja var samþykkt samhljóða.

Jóhann Steinar fór því næst yfir starfskjarastefnu Stapa en starfskjarastefnan var lögð fram óbreytt frá fyrra ári. Tillagan samþykktar samhljóða.

Nefnd um laun stjórnar lagði til að stjórnar- og nefndarlaun hjá Stapa hækki um 3,5% í samræmi við almennar launahækkanir í nýlegum kjarasamningum. Tillagan var samþykkt samhljóða.

Þá var nefnd um laun stjórnar einnig samþykkt samhljóða en í nefndinni sitja auk stjórnarformanns Stapa, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Ósk Helgadóttir og Tryggvi Jóhannsson.

Gögn frá ársfundinum: