Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf

Sjóðfélagayfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar er aðgengilegt á sjóðfélagavef en yfirlitin birtast einnig í stafrænu pósthólfi á Ísland.is.

Í spurt og svarað höfum við tekið saman helstu spurningar og svör.

Sjóðfélagar hvattir til að yfirfara samskiptaupplýsingar á sjóðfélagavef og Ísland.is og hafa samband við sjóðinn ef eitthvað er óljóst.

Fylgist þú með?

Það er mikilvægt að bera iðgjaldagreiðslur saman við launaseðla. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er áríðandi að tilkynna það til sjóðsins innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins..

Ný lifeyrisreiknivél og Stapi á Facebook

Fréttabréf Stapa er komið út og við hvetjum þig til að skoða það. Meðal efnis er ný lífeyrisreiknivél, unnin í samstarfi við Aurbjörgu, sem birt var á sjóðfélagavefnum okkar í dag. Einnig voru merk tímamót þegar Stapi steig sín fyrstu skref á samfélagsmiðlum í vikunni með Facebook síðu. Fylgdu okkur, við erum rétt að byrja.