Nýtt sjóðfélagayfirlit

Sjóðfélagayfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar frá útsendingu síðasta yfirlits eru nú aðgengileg á sjóðfélagavef en yfirlitin birtast einnig í stafrænu pósthólfi á Ísland.is.

Yfirlitið mun á næstu dögum berast til þeirra sem hafa óskað eftir að fá það sent í almennum bréfapósti.

Stapi brýnir fyrir sjóðfélögum að bera iðgjaldagreiðslur saman við launaseðla. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er áríðandi að tilkynna það til sjóðsins innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins.

Mikilvægt er að yfirfara hvort launagreiðandi skili inn mótframlagi í samræmi við kjarasamning. Hlutfallstala iðgjalds og mótframlags birtist fyrir aftan nafn launagreiðanda á yfirlitunum. Ef sjóðfélagi er ekki viss um hvert mótframlagið á að vera er rétt að hafa samband við viðeigandi stéttarfélag.

Í spurt og svarað höfum við tekið saman helstu spurningar og svör.

Stapi gaf út nýtt fréttabréf á dögunum en í því er meðal annars fjallað um breytingar á útsendingu yfirlita, réttindakerfi Stapa, kostnað vörsluaðila séreignarsparnaðar, ávöxtun o.fl.

Vinsamlega hafið samband við sjóðinn ef frekari upplýsinga er óskað. Hægt er að senda beiðni á stapi@stapi.is eða hafa samband við okkur í síma 460-4500 til að fá aðstoð.