Fréttir af ársfundi sjóðsins

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn í Skjólbrekku í Mývatnssveit, miðvikudaginn 3. maí. Mæting á fundinn var góð og fór hann vel fram. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.

Ágúst Torfi Hauksson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2016. Þá fór Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri yfir ársreiknings sjóðsins og áritanir og gerði grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu. Var ársreikningur sjóðsins samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni.

Einnig kynntu Arne Vagn Olsen, fjárfestingarstjóri, og Jóna Finndís Jónsdóttir, áhættustjóri, fjárfestinga- og áhættustefnu sjóðsins.

Á fundinum voru lagðar fram til kynningar breytingar á samþykktum sjóðsins sem stjórn staðfesti eftir athugasemdir Fjármálaráðuneytis. Athugasemdir sneru annars vegar að breytingum á samþykktum frá síðasta ársfundi og hins vegar að eldri ákvæðum.

Einnig voru lagðar fram tillögur að breytingum á einstökum greinum samþykkta sjóðsins og gerði Jóna Finndís Jónsdóttir, áhættustjóri, grein fyrir þeim. Allar breytingatillögur voru samþykktar.

Gert var grein fyrir starfskjarastefnu sjóðsins en hún er óbreytt frá síðasta ári og var samþykkt.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs skipa í dag:

Frá launamönnum:

Huld Aðalbjarnardóttir (formaður), Sverrir Mar Albertsson, Tryggvi Jóhannsson og Þórarinn Sverrisson.

Varamenn: Heimir Kristinsson og Sigríður Dóra Sverrisdóttir,

Frá launagreiðendum:

Erla Jónsdóttir (varaformaður), Ágúst Torfi Hauksson, Kristín Halldórsdóttir og Valdimar Halldórsson.

Varamenn: Guðrún Ingólfsdóttir og Unnar Már Pétursson

Þá var samhljóða samþykkt tillaga að Deloitte ehf. sem löggiltum endurskoðanda sjóðsins og einnig tillaga að hækkun stjórnarlauna frá síðasta ári, í samræmi við hækkun á vísitölu.

Undir liðnum önnur mál talaði Jóna Finndís Jónsdóttir um ýmis atriði tengd áfallatryggingum sjóðsins.

Gögn frá ársfundinum: