Ársreikningur Stapa 2016

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2016.  Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 187 milljarðar króna og hækkaði um u.þ.b. 7,4 milljarða króna frá fyrra ári.

Nafnávöxtun tryggingadeildar sjóðsins var jákvæð um 2,0% á árinu en hrein raunávöxtun var neikvæð um 0,1%.  Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ár er um 3,8%.

Greiddir voru um 4,8 milljarðar króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins á árinu til um 8.500 lífeyrisþega.  Voru þetta um 6,9% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 5,7%.

Alls greiddu rúmlega 20.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 3.000 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 8,3 milljörðum króna og hækkuðu um 12% á milli ára.  Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 13.900.

Séreignardeild sjóðsins býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir.  Ávöxtun safnanna var eftirfarandi:

Innlána safnið skilaði 4,7% nafnávöxtun sem svarar til 2,6% raunávöxtunar
Varfærna safnið skilaði 3,5% nafnávöxtun sem svarar til 1,3% raunávöxtunar
Áræðna safnið skilaði 1,9% nafnávöxtun sem svarar til -0,2% raunávöxtunar

Hér má sjá ársreikninginn í heild sinni.