Sjóðfélagayfirlit í póstdreifingu

Senn berast yfirlit til Sjóðfélaga Stapa með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar frá apríl 2017. Stapi brýnir fyrir sjóðfélögum að bera iðgjaldagreiðslur saman við launaseðla. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er mikilvægt að tilkynna það til sjóðsins innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins. 

Nánari útskýringar má finna á www.stapi.is/yfirlit þar sem farið er yfir einstaka þætti.

Það er auðvelt fyrir sjóðfélaga að fylgjast með réttindum sínum með rafrænum hætti og hvetjum við sjóðfélaga til að hjálpa okkur að gera hlutina hagkvæmari og vistvænni. Hægt er að afþakka pappír á vef sjóðfélaga, sem er að finna á heimasíðu sjóðsins með veflykli eða rafrænum skilríkjum. 

Undir Stillingar / Notendaupplýsingar er hægt að haka í „Afþakka pappír“.

Vinsamlega hafið samband við sjóðinn ef frekari upplýsinga er óskað. Hægt er að senda beiðni á stapi@stapi.is eða hafa samband við okkur í síma 460-4500 til að fá aðstoð.