Yfirlit aðgengileg á vef launagreiðenda

Launagreiðendur sem skráð hafa virk netföng á vef launagreiðenda hafa fengið orðsendingu í tölvupósti þess efnis að yfirlit vegna iðgjalda sem borist hafa sjóðnum frá 1. október 2022 til 28. febrúar 2023 eru nú aðgengileg á vefnum.

Yfirlitin eru eingöngu á rafrænu formi og ekki send út á pappír nema ef sérstaklega er óskað eftir því. Þeir launagreiðendur sem kjósa að fá yfirlit send á pappír geta haft samband við Stapa í síma eða sent inn beiðni á netfangið idgjold@stapi.is.

Í orðsendingunni er minnt á lagabreytingu um hækkað mótframlag launagreiðenda vegna iðgjalda sem tók gildi þann 1. janúar sl.. Þar er gert ráð fyrir 4% framlagi launþega á móti 11,5% mótframlagi launagreiðenda (í stað 8%). Hjá þeim launagreiðendum sem þegar greiddu 11,5% í mótframlag eru engar breytingar. Ef kveðið er á um aðra hlutfallstölu í kjarasamningum þá gildir hún þar til samkomulag hefur náðst um annað.

Við hvetjum launagreiðendur jafnframt til að skrá inn virk netföng á vefinn til að auðvelda upplýsingagjöf.

Vinsamlega hafið samband við sjóðinn ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir.