Viðbygging við Múlann vígð við hátíðlega athöfn

Síðastliðinn laugardag var viðbygging við Múlann í Neskaupstað vígð en athöfnin var hluti af hátíðarhöldum vegna sjómannadags í bænum. Stapi hefur frá árinu 2021 verið með skrifstofu í húsinu en flutti nýlega í stærra rými í viðbyggingunni.

Það voru Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og Smári Geirsson stjórnarmaður í Múlanum sem klipptu á borða og opnuðu þar með glæsilega 750 fermetra viðbyggingu. Húsnæðið er nú um 1700 fermetrar og í eigu Samvinnnufélags útgerðarmanna Neskaupstað sem í daglegu tali er nefnt SÚN. Samtals eru 20 fyrirtæki, stofnanir og félög með starfsemi í húsinu en starfsmannafjöldi er að nálgast 50 talsins. 

Meðfylgjandi eru myndir frá vígsludegi sem Guðmundur R og Alfa Freysdóttir (Grafít) tóku ásamt myndum af skrifstofu Stapa frá starfsmönnum sjóðsins.