Vel heppnaður fræðslufundur í Neskaupstað

Í dag fór fram fyrri fræðslufundur Stapa í Múlanum í Neskaupstað. Þar skapaðist gott samtal um mörg mikilvæg atriði sem tengjast lífeyrismálum og þátttakendur fengu jafnframt tækifæri til að spyrja spurninga um það sem helst brennur á þeim.

Annar fundur á morgun - nokkur pláss laus

Stapi heldur annan fund á sama stað í hádeginu á morgun og eru sjóðfélagar hvattir til nýta tækifærið og skrá sig. Fundurinn er ætlaður öllum aldurshópum. Aðgangur er ókeypis og hægt að skrá sig hér að neðan.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Skráning á fræðslufund í Múlanum 16. september kl. 12