Upplýsingabréf séreignardeildar til sjóðfélaga 60 ára og eldri

Séreignardeild Stapa hefur á undanförnum vikum sent upplýsingar á Ísland.is um inneign sem er laus til útgreiðslu til sjóðfélaga sem eru 60 ára eða eldri.

Umsóknir má finna á vefsvæði sjóðsins undir Umsóknir, bæði rafrænar og til útprentunar. Umsóknir sem berast sjóðnum fyrir 15. dag mánaðar koma til greiðslu í lok umsóknarmánaðar.

Á heimasíðu sjóðsins má finna frekari upplýsingar um séreign, m.a. reglur um útborgun, ávöxtun o.fl.