Uppfærsla á gagnagrunni HMS

Helgina 5.-7. júní fer fram uppfærsla á gagnagrunnum Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Það hefur áhrif á ýmis kerfi og þjónustu m.a. verða fasteigna- og ökutækjaskrár óaðgengilegar sem hefur þau áhrif að ekki verður hægt að stofna ný greiðslumöt hjá Stapa á meðan.

Gert er ráð fyrir að uppfærslan hefjist um kl. 17.00 í dag og verið lokið um kl. 13:00 á sunnudaginn.