Tilkynning frá stjórn Stapa lífeyrissjóðs vegna starfsloka fyrrverandi framkvæmdastjóra

Stjórn Stapa Lífeyrissjóðs lýsir vonbrigðum með dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli sem fyrrverandi framkvæmdastjóri sjóðsins höfðaði vegna starfsloka sinna vorið 2016 eftir að nafn hans kom upp í „Panamaskjölunum“ svokölluðu. Samskipti framkvæmdastjóra og stjórnar lífeyrissjóðsins á þeim tíma hafa gefið tilefni til mismunandi túlkunar á eðli starfslokanna.

Stjórn telur að framkvæmdastjórinn hafi með yfirlýsingu sinni á vef sjóðsins um starfslok sín látið fyrirvaralaust af starfi  og þar með fyrirgert rétti sínum til launa á uppsagnarfresti. Stjórnin leitaði þess vegna eftir áliti þriggja lögmannsstofa á sínum tíma og álit þeirra voru öll á eina lund og gagnstæð niðurstöðu dómsins. Í ljósi þess taldi stjórnin sér ekki stætt að greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra laun á uppsagnarfresti án dómsniðurstöðu í málinu. Dómari héraðsdóms var ekki á sama máli og dæmdi framkvæmdastjóra rétt til launa á uppsagnarfresti.

Stjórn Stapa Lífeyrissjóðs harmar það tjón sem málið veldur sjóðsfélögum. Stjórnin er nú að fara yfir dóminn í heild og málsgögn og kanna með lögmönnum sínum möguleika til áfrýjunar.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs