Til launagreiðenda - Hækkun á mótframlagi 1. júlí

Í janúar 2016 var undirritaður samningur milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins þar sem m.a. var samið um þrepaskipta hækkun mótframlags launagreiðenda í lífeyrissjóð.

Framlag atvinnurekenda hækkar þann 1. júlí 2017 um 1,5% og verður þá 10% skv. samningnum. Fyrir áhugasama má nálgast samninginn í heild sinni hér.

Stapi beinir þeim tilmælum til launagreiðenda að gera viðeigandi ráðstafanir við skil á iðgjöldum.

í dag var sendur út tölvupóstur til þeirra sem skráð hafa netföng á vef launagreiðenda, til upplýsingar um þetta málefni. Við hvetjum alla þá launagreiðendur sem ekki hafa skráð netföng að ganga frá skráningu svo unnt sé að koma upplýsingum til skila með auðveldum hætti.