Tafir í útsendingu sjóðfélagayfirlita

Því miður urðu tafir á útsendingu sjóðfélagayfirlita og eru þau því að berast sjóðfélögum í pósti um þessar mundir, nokkru seinna en ráðgert var.

Stapi lífeyrissjóður biður sjóðfélaga afsökunar á þessum töfum og þeim óþægindum sem þetta kann að valda.