Starfslokanámskeið Austurbrúar

Austurbrú stendur fyrir starfslokanámskeiði í Neskaupstað þriðjudaginn 10. október kl. 17:00-19:40. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja undirbúa starfslok og aðlaga sig að breyttu lífsmynstri. Jóna Finndís Jónsdóttir forstöðumaður réttindasviðs Stapa mun fjalla um lífeyrismál á námskeiðinu.

Austurbrú innheimtir námskeiðsgjald en rétt er að taka fram að enginn kostnaður fellur til vegna þátttöku Stapa á námskeiðinu.

Nánari upplýsingar og skráning á vef Austurbrúar.