Starfslokanámskeið Austurbrúar

Austurbrú stendur fyrir starfslokanámskeiði á Reyðarfirði fimmtudaginn 24. mars kl. 16:30-20:30. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja undirbúa starfslok og aðlaga sig að breyttu lífsmynstri. Jóna Finndís Jónsdóttir forstöðumaður réttindasviðs Stapa mun fjalla um lífeyrismál á námskeiðinu. 

Austurbrú innheimtir námskeiðsgjald en rétt er að taka fram að enginn kostnaður fellur til vegna þátttöku Stapa á námskeiðinu. 

Nánari upplýsingar og skráning á vef Austurbrúar.