Stapi fjárfestir í grænum lausnum

Stapi er einn þrettán íslenskra lífeyrissjóða sem hyggjast fjárfesta samtals 4,5 milljörðum Bandaríkjadala (um 580 milljarða króna) í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030. Sjóðirnir hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) sem var formlega kynnt í morgun á lofslagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fram fer í Glasgow í Skotlandi. 

Með yfirlýsingunni staðfesta íslensku sjóðirnir þrettán vilja til að stórauka grænar fjárfestingar sínar og styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þar er meðal annars horft til ákvæða Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Climate Investment Coalition (CIC) eru alþjóðleg samtök sem hafa það að markmiði að stuðla að aukinni fjárfestingu í hreinni orku og öðrum umhverfislausnum, svo sem nýtingu jarðhita, vindorku, sólarorku, bættrar orkunýtingar í byggingum og bættri tækni við flutning raforku. 

Horft verður til verkefna sem nýta jarðvarma en einnig er stefnan að styðja við aukna notkun annarra sjálfbærra orkugjafa með það að markmiði að stuðla að aukinni notkun hreinnar orku í samgöngum og atvinnustarfsemi. Sjóðirnir sem taka þátt í verkefinu eru Almenni lífeyrissjóðurinn, Birta lífeyrissjóður, Brú lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður bankamanna, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífsverk, LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, SL lífeyrissjóður og Stapi lífeyrissjóður.

CIC mun fylgjast með og mæla hvort þátttakendur í verkefninu standi við yfirlýst markmið og birta niðurstöður sínar árlega.