Skrifstofur Stapa opna aftur

Skrifstofur Stapa á Akureyri og í Neskaupstað opna aftur fyrir heimsóknir mánudaginn 11. maí. Við hvetjum samt til þess að þeir sem eiga erindi við sjóðinn nýti áfram rafrænar lausnir og símtöl ef hægt er.

Við gætum þess að fara eftir neðangreindum leiðbeiningum:

  • Virða 2ja metra regluna. Settar verða upp merkingar á skrifstofum til að minna á regluna.
  • Sinnum handþvotti og sprittum á okkur hendur þegar inn er komið.
  • Þeir sem finna fyrir einkennum Covid-19, hafa verið erlendis síðustu 14 daga, bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku eða eru í einangrun eða sóttkví vegna veirunnar eru beðnir um að koma ekki á skrifstofur okkar.

Við hvetjum til þess að þeir sem eiga erindi við sjóðinn nýti áfram neðangreindar þjónustuleiðir:

  • Sjóðfélagavefur
    Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, stöðu lána, sjóðfélagayfirlit o.fl.

  • Launagreiðendavefur
    Launagreiðendur finna allar upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins á launagreiðendavef.

  • Umsóknir
    Allar umsóknir sjóðsins er að finna á umsóknarvef. Hægt er að skila inn öllum umsóknum nema vegna sjóðfélagalána með rafrænum skilríkum. Umsóknum vegna sjóðfélagalána og önnur gögn þeim tengdum má senda í tölvupósti á netfangið lan@stapi.is. Gögn til undirritunar sendir sjóðurinn í ábyrgðarpósti.

  • Símaþjónusta og tölvupóstur
    Hægt er að senda fyrirspurnir til sjóðsins í tölvupósti á stapi@stapi.is. Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00-12:30 og 13:00-15:00 í síma 460-4500