Skrifstofur lokaðar eftir hádegi 9. maí vegna ársfundar

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri miðvikudaginn 9. maí. Af því tilefni verða skrifstofur sjóðsins lokaðar frá kl. 12:00.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn sjóðsins eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.