Skrifstofan á Akureyri lokuð eftir hádegi 8. maí

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri miðvikudaginn 8. maí. Af því tilefni verður skrifstofa sjóðsins á Akureyri lokuð frá kl. 12:00.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn Stapa eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í vefútsendingu á heimasíðu sjóðsins.