Við erum flutt - Breyttur opnunartími

Stapi hefur flutt skrifstofu sína í Neskaupstað að Hafnarbraut 20 og deilir nú húsnæði með Landsbankanum. Um leið breytist afgreiðslutími sjóðsins á Austurlandi til samræmis við opnunartíma bankans. Opið verður alla virka daga frá kl. 12:00 til 15:00 en skrifstofa sjóðsins hefur fram til þessa verið lokuð hádeginu. 

Með þessari breytingu verður aðgengi að húsnæði sjóðsins bætt verulega þar sem starfsemin flyst á fyrstu hæð með aðgengi fyrir hjólastóla.

Engar breytingar verða á starfsmannahaldi. Sjóðurinn verður áfram með einn starfsmann í fullu starfi sem mun sinna iðgjaldaskráningu og símsvörun utan opnunartíma skrifstofunnar í Neskaupstað. 

Sjóðfélagar eru boðnir velkomnir á nýjan stað.