Skrifstofan á Akureyri lokuð eftir hádegi 7. mars

Vegna flutninga verður skrifstofa Stapa á Akureyri lokuð eftir hádegi nk. fimmtudag. Þá flyst starfsemin af 3. hæð og opnum við aftur föstudaginn 8. mars á 2. hæð að Strandgötu 3. Breytingar á húsnæðinu halda þó áfram þar sem framkvæmdir hefjast nú á 3. hæð. 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.