Sjóðfélagayfirlit í póstdreifingu

Senn berast yfirlit með upplýsingum yfir iðgjaldahreyfingar fyrstu 9 mánuði ársins 2016 til sjóðfélaga Stapa. Mikilvægt er að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðli. Vanti innborganir skal hafa samband við starfsfólk Stapa í síma 460 4500. Jafnframt er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið idgjold@stapi.is.

Meðfylgjandi yfirlitinu að þessu sinni er fréttabréf frá sjóðnum, það má einnig sjá hér að neðan.