Sérstök útborgun séreignar

Alþingi samþykkti  þann 30. mars sl. tímabundna heimild til útgreiðslu á viðbótarlífeyrissparnaði.

  • Umsóknarfrestur er frá apríl 2020 til og með 31. desember 2020.
  • Hægt er að taka út allt að 12.000.000 kr. (óháð því hvort heildarfjárhæðin er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila).
  • Fjárhæðin greiðist út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum á allt að 15 mánuðum frá því að beiðni um útgreiðslu er lögð fram hjá vörsluaðila.
  • Staðgreiðsla er dregin frá útborgun.
  • Umsóknarfrestur er til 15. hvers mánaðar vegna útgreiðslu í lok viðkomandi mánaðar.

Hægt er að sækja um sérstaka útborgun séreignarsparnaðar á umsóknarvef en þar er sérstök umsókn vegna þessarar útgreiðslu.

Upplýsingar um inneign í séreign hjá Stapa er að finna á vef sjóðfélaga.

Bendum einnig á spurt og svarað - Úrræði vegna COVID-19.