Séreignarsparnaður - Nýtt úrræði vegna kaupa á fyrstu íbúð

Séreignarsparnaður - Nýtt úrræði vegna kaupa á fyrstu íbúð

Þann 1. júlí nk. taka gildi lög nr. 111/2016, um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Aðgerðin er hugsuð fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu húseign eða vilja byrja að spara fyrir kaupum á fyrstu íbúð.

Með lögunum er veittur réttur til að nýta séreignarsparnað skattfrjálst sem innborgun eða til að greiða niður höfuðstól og afborganir lána sem tekin eru vegna kaupanna.

Helstu atriði í lögunum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð eru:

  • Rétthafi má ekki hafa átt íbúð áður og hann þarf að kaupa íbúð annað hvort einn eða í félagi við annan einstakling.
  • Skilyrði er að rétthafi eigi a.m.k. 30% hlut í íbúðarhúsnæðinu og að lánið sé tryggt með veði í húseigninni.
  • Heimildin takmarkast við 6% af launum (4% frá einstaklingi og 2% frá launagreiðanda).
  • Hámarksfjárhæð er 500.000 kr. á ári fyrir hvern einstakling eða 5 milljónir á 10 ára tímabili. Hjón geta því nýtt að hámarki 10 milljónir samtals.
  • Gildir í 10 ár samfellt og velur umsækjandi upphafstíma. Fólki er frjálst að skipta um húsnæði á tímabilinu en skilyrði er að kaup á nýrri íbúð fari fram innan 12 mánað frá sölu þeirrar íbúðar sem veitti réttinn í upphafi.
  • Einstaklingar sem þegar nýta séreignarsparnað inn á höfuðstól láns samkvæmt fyrri heimild geta sótt um þetta úrræði ef um er að ræða fyrstu íbúð. Tímabilið sem hefur verið nýtt kemur þá til frádráttar samfelldu 10 ára tímabili.
  • Þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir má sækja um rafrænt á vef ríkisskattstjóra. Ekki þarf að sækja um þar fyrr en óskað er eftir úttektinni.

 Til að þessi ráðstöfun sé möguleg þarf að vera með samning um viðbótarlífeyrissparnað. Hægt er að sækja um séreignarsparnað hjá Stapa lífeyrissjóði hér.