Opnað fyrir almenna ráðstöfun séreignar inn á lán

Skatturinn hefur opnað aftur fyrir almennar umsóknir um ráðstöfun á séreignarsparnaði inn á húsnæðislán.

  • Heimildina má nýta iðgjöld í allt að tíu ár, eða samtals 120 mánuði. Fyrri nýting sambærilegra skattfrjálsra úrræða telst með í tímabilinu.
  • Heimilt er að ráðstafa allt að 500.000 krónum á einstakling inn á lánið. Hámarksfjárhæðir breytast árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs, fyrst árið 2027.
  • Sérstakt sameiginlegt hámark fyrir hjón eða sambúðarfólk er ekki í nýja úrræðinu.
  • Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort fyrir sig.

Til að nýta heimildina afturvirkt þarf að senda inn umsókn í síðasta lagi 30. nóvember næstkomandi. Eftir þann tíma gildir umsókn frá þeim mánuði sem hún berst.

Meðal skilyrða er að umsækjandi eigi að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu, sé með skráð lögheimili þar og að lánið sé tryggt með veði í húsnæðinu.

Nánari upplýsingar og umsókn eru á Ísland.is.