Opið hús í Múlanum á laugardaginn

Viðbygging Múlans í Neskaupstað verður formlega vígð laugardaginn 31. maí kl. 17-19. Á sama tíma er gestum og gangandi boðið að skoða húsnæðið og þiggja veitingar.

Stapi hefur frá árinu 2021 verið með skrifstofu í húsinu en flutti nýlega í stærra rými í viðbyggingunni. Við hvetjum sem flesta til að líta við en starfsfólk Stapa verður að sjálfsögðu á staðnum og tekur á móti gestum.