Opið hús hjá Stapa á Akureyri

Á vormánuðum lauk endurbótum á húsnæði Stapa á Akureyri. Af því tilefni verður sjóðurinn með opið hús að Standgötu 3 á Akureyri fimmtudaginn 14. nóvember kl. 15-17.

Við hvetjum sjóðfélaga og launagreiðendur til að koma og kynna sér starfsemi sjóðsins. Starfsfólk allra deilda verður á staðnum til að ræða málin og  svara fyrirspurnum. 

Stuttar kynningar verða haldnar á grunnþáttum réttindakerfis sjóðsins kl. 15:30 og 16:30. 

Boðið verður upp á léttar veitingar.