Launagreiðendur með skráð hafa virk netföng á vef launagreiðenda hafa fengið orðsendingu í tölvupósti þess efnis að nýtt yfirlit vegna iðgjalda er aðgengilegt á vefnum. Yfirlitið nær yfir iðgjöld sem borist hafa sjóðnum frá 1. september til 28. febbrúar 2025.
Yfirlitin eru eingöngu á rafrænu formi og ekki send út á pappír nema ef sérstaklega er óskað eftir því. Þeir launagreiðendur sem kjósa að fá yfirlit send á pappír geta haft samband við Stapa í síma eða sent inn beiðni á netfangið idgjold@stapi.is.
Launagreiðendur eru jafnframt hvattir til að skrá inn virk netföng á vefinn til að auðvelda upplýsingagjöf.
Í tölvupóstinum var einnig nefnt að nýr launagreiðendavefur sem tekinn var í notkun á sl. ári hefur mælst vel fyrir hjá launagreiðendum og bókhaldsfyrirækjum.
Meðal nýjunga á vefnum er að launagreiðendur geta:
Um leið og við þökkum fyrir góðar móttökur hvetjum við launagreiðendur til að senda okkur áfram ábendingar á idgjold@stapi.is.
Á launagreiðendavef er hægt að veita öðrum umboð. Einstaklingur með slíkt umboð hefur þannig aðgang að upplýsingum á vefnum með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Hægt er að sækja um veflykil á innskráningarsíðu vefsins. Nánari upplýsingar á vefsíðu sjóðsins.
Vinsamlega hafið samband við sjóðinn ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir.