Launagreiðendur með skráð virk netföng á vef launagreiðenda hafa fengið orðsendingu í tölvupósti þess efnis að nýtt yfirlit vegna iðgjalda er aðgengilegt á vefnum. Yfirlitið nær yfir iðgjöld sem borist hafa sjóðnum frá frá 1. mars til 31. ágúst 2026.
Yfirlitin eru eingöngu á rafrænu formi og ekki send út á pappír nema ef sérstaklega er óskað eftir því. Þeir launagreiðendur sem kjósa að fá yfirlit send á pappír geta haft samband við Stapa í síma eða sent inn beiðni á netfangið idgjold@stapi.is.
Í tölvupóstinum var einnig áréttað mikilvægi þess að skila inn núllskilagreinum ef engin iðgjöld eru fyrir tiltekinn mánuð. Skv. 4. mgr. 7. gr. laga nr. 129/1997 bera lífeyrissjóðir ábyrgð á að fylgjast með því að lögbundnum iðgjöldum sé skilað. Ef skilagrein berst ekki fyrir tiltekinn mánuð hefur sjóðurinn ekki upplýsingar um hvort iðgjaldaskylda hafi verið efnd og getur því þurft að áætla iðgjöld á grundvelli fyrri skilagreina eða annarra fyrirliggjandi gagna. Í slíkum tilvikum er launagreiðanda send áminning um að senda skilagrein eða leiðrétta upplýsingar.
Það er mikilvægt að tilkynna ef engin iðgjöld eru fyrir viðkomandi mánuð.
Það er hægt að gera með því að: