Á vef Stapa er nú hægt að bóka viðtal við starfsfólk vegna iðgjalda- og lífeyrismála. Í boði eru bæði staðar- og fjarviðtöl, hvort sem er í gegnum síma eða Teams fjarfundabúnað.
Til að bóka viðtal þarf að:
Ef ekki er laus tími sem hentar er hægt að senda tölvupóst á stapi@stapi.is með ósk um viðtal. Við reynum eftir fremsta megni að verða við slíkum óskum.
Rétt er að geta þess að það er ekki nauðsynlegt að bóka tíma til að fá þjónustu hjá Stapa. Sjóðfélögum og launagreiðendum er ávallt velkomið að koma á skrifstofur sjóðsins á opnunartíma, senda tölvupóst eða hafa samband í gengum síma. Við leggjum okkur fram um að sinna öllum erindum eins vel og kostur er.