Það styttist í útsendingu iðgjaldayfirlita. Sjóðfélagar eru því hvattir til að yfirfara samskiptaupplýsingar til að einfalda upplýsingagjöf. Stapi birtir yfirlitin tvisvar á ári, að vori og hausti.
- Meginreglan hjá Stapa er að birta yfirlit rafrænt á sjóðfélagavef og í rafrænu pósthólfi á Ísland.is.
- Sjóðfélagar með skráð netfang á sjóðfélagavef fá tölvupóst um birtingu yfirlitanna og hnipp í gegnum Ísland.is ef samskiptaupplýsingar eru skráðar þar.
- Á sjóðfélagavef eru samskiptaupplýsingar skráðar undir Mínar upplýsingar og á Ísland.is undir Mínar stillingar.
Réttindi sjóðfélaga byggjast á þeim iðgjöldum sem skila sér til sjóðsins. Það er því afar mikilvægt að skoða yfirlitin vel og bera þau saman við iðgjöld sem dregin eru af launum.