Lokað fyrir heimsóknir hjá Stapa

Skrifstofur Stapa á Akureyri og í Neskaupstað verða lokaðar fyrir heimsóknir frá og með föstudeginum 20. mars. Ákvörðun varðandi þessa ráðstöfun er hluti af viðbragðsáætlun sjóðsins vegna útbreiðslu COVID-19. Starfsfólk mun áfram sinna verkefnum og þjónustu við sjóðfélaga, launagreiðendur og aðra sem þurfa að leita til sjóðsins gegnum tölvupóst eða síma. Starfsemin verður skipulögð þannig að sem minnst röskun verði á þjónustu en búast má við að það hægi á einhverjum þáttum.

Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér neðangreindar þjónustuleiðir:

Sjóðfélagavefur

  • Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, stöðu lána, sjóðfélagayfirlit o.fl.

Launagreiðendavefur

  • Launagreiðendur finna allar upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins á launagreiðendavef.

Umsóknir

  • Allar umsóknir sjóðsins er að finna á umsóknarvef. Hægt er að skila inn öllum umsóknum nema vegna sjóðfélagalána með rafrænum skilríkum.
  • Umsóknum vegna sjóðfélagalána og önnur gögn þeim tengdum má senda í tölvupósti á netfangið lan@stapi.is. Gögn til undirritunar sendir sjóðurinn í ábyrgðarpósti.

Símaþjónusta og tölvupóstur

  • Hægt er að senda fyrirspurnir til sjóðsins í tölvupósti á stapi@stapi.is. Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00-12:30 og 13:00-15:00 í síma 460-4500.

Skil á gögnum

  • Hægt er að skila inn gögnum á hefðbundnum opnunartíma í afgreiðslu sjóðsins í Strandgötu 3 á Akureyri og Hafnarbraut 20 í Neskaupstað.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.