Hefur þú gert ráðstafanir?

Framlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkaði þann 1. júlí um 1,5% og er nú 11,5%. Hækkunin reiknast fyrst á laun fyrir júlímánuð.

Þetta er lokahækkun á mótframlaginu samkvæmt samningi ASÍ og SA sem undirritaður var í janúar 2016. 

Stapi beinir þeim tilmælum til launagreiðenda að gera viðeigandi ráðstafanir við skil á iðgjöldum.