Gögn og fyrirkomulag rafræns ársfundar 2021

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs fer fram miðvikudaginn 5. maí nk. kl. 14:00. Vegna sóttvarnarráðstafana verður fundurinn rafrænn.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegs mats
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Hluthafastefna sjóðsins
  5. Skipan stjórnar
  6. Starfskjarastefna
  7. Val á fulltrúum í nefnd um laun stjórnar
  8. Laun stjórnar
  9. Kosning löggilts endurskoðanda
  10. Breytingar á samþykktum
  11. Önnur mál

Fulltrúar í fulltrúaráði fá sendan tölvupóst fyrir vikulok með öllum helstu upplýsingum ásamt tengli á fundinn. Aðeins skráðir fulltrúar í fulltrúaráði geta kosið á fundinum.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum með málfrelsi og tillögurétti. Fundinum verður streymt á vefsíðu Stapa. Þannig geta sjóðfélagar fylgst með fundinum en þar er ekki hægt að taka þátt í umræðum. Þeir sem vilja vera þátttakendur á fundinum þurfa að skrá sig sérstaklega í síðasta lagi mánudaginn 3. maí og fá í framhaldinu sendan tengil til innskráningar.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundinum, tillögurnar og önnur fundargögn eru hér að neðan.

Fundargögn:
Ársreikningur Stapa 2020
Starfskjarastefna
Tillögur til samþykktarbreytinga og greinargerð
Ársskýrsla Stapa 2020

Nánari upplýsingar ásamt leiðbeiningum um framkvæmd fundarins og hlekkur á kosningu fyrir fulltrúaráð verður aðgengilegt á heimasíðu Stapa.