Haustfundur fulltrúaráðs 2020

Stjórn Stapa boðar til fulltrúaráðsfundar þriðjudaginn 24. nóvember kl 17:00. Fulltrúar atvinnurekenda og forsvarsmenn aðildarfélaga hafa fengið sent fundarboð í tölvupósti.

Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður fundurinn rafrænn. Upplýsingar um skráningu eru í fundarboði.

Fulltrúaráðið er samkvæmt samþykktum sjóðsins skipað þeim aðilum sem voru fulltrúar launamanna og atvinnurekenda á ársfundi sjóðsins í maí síðastliðnum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Lykiltölur úr rekstri og framvinda fjárfestingarstefnu
Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Stapa

Fjárfestingarstefna 2021
Brynjar Þór Hreinsson, fjárfestingarstjóri Stapa