Stjórn Stapa hefur boðað til rafræns fundar fulltrúaráðs, fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 16:30. Hlekkur á fund og upplýsingar um atkvæðagreiðslu verða sendar fulltrúum í tölvupósti þegar nær dregur fundi.
Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Á fundinum verður m.a. farið yfir lykiltölur, breytingar á samþykktum undirbúnar fyrir ársfund og tilnefningar í stjórn sjóðsins staðfestar. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.
Drög að dagskrá fundarins eru eftirfarandi:
Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 13. maí 2025 sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa.
Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.