Fulltrúaráðsfundur 8. desember

Fimmtudaginn 8. desember kl. 16:30 verður haldinn fulltrúaráðsfundur hjá Stapa.

Fulltrúaráðið er samkvæmt samþykktum sjóðsins skipað þeim aðilum sem voru fulltrúar launamanna og atvinnurekenda á ársfundi sjóðsins í júní síðastliðnum.

Fundurinn verður rafrænn og hafa fulltrúar fengið sendan hlekk á fundinn í tölvupósti ásamt leiðbeiningum varðandi innskráningu.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning fulltrúaráðsfundar
    Erla Jónsdóttir, stjórnarformaður
  2. Lykilatriði úr rekstri sjóðsins 2022
    Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
  3. Fjárfestingarstefna 2023
    Brynjar Þór Hreinsson, forstöðumaður eignastýringar
  4. Aldurstengdar lífslíkur og samþykktir Stapa
    Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri og Jóna Finndís Jónsdóttir, forstöðumaður réttindasviðs.
  5. Önnur mál

Vinsamlega hafið samband við Einar Hólm Davíðsson ef vandamál koma upp við að tengjast fundinum, einarholm@stapi.is eða 460-4526.

Upplýsingar um framkvæmd fundarins veitir Kistín Hilmarsdóttir, kristin@stapi.is