Fulltrúaráðsfundur 8. desember

Miðvikudaginn 8. desember kl. 16 verður haldinn fulltrúaráðsfundur hjá Stapa.

Fulltrúaráðið er samkvæmt samþykktum sjóðsins skipað þeim aðilum sem voru fulltrúar launamanna og atvinnurekenda á ársfundi sjóðsins í maí síðastliðnum.

Fundurinn verður rafrænn og hafa fulltrúar fengið sendan hlekk á fundinn í tölvupósti ásamt leiðbeiningum varðandi innskráningu.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning fulltrúaráðsfundar
    Tryggvi Jóhannsson, stjórnarformaður
  2. Lykiltölur úr afkomu 
    Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
  3. Framvinda fjárfestingarstefnu og fjárfestingarstefna 2022
    Brynjar Þór Hreinsson, forstöðumaður eignastýringar
  4. Spá um hækkandi lífaldur
    Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
  5. Önnur mál

Vinsamlega hafið samband við Einar Hólm Davíðsson ef vandamál koma upp við að tengjast fundinum, einarholm@stapi.is eða 460-4526.

Upplýsingar um framkvæmd fundarins veitir kristin@stapi.is