Fulltrúaráðsfundur 7. desember

Stjórn Stapa boðar til rafræns fundar fulltrúaráðs, fimmtudaginn 7. desember kl. 16:30.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar, þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 3. maí sl. sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa.

Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.

Drög að dagskrá fundarins eru eftirfarandi:

  1. Lykilatriði úr rekstri sjóðsins 2023
  2. Fjárfestingarstefna 2024
  3. Önnur mál

Fulltrúar fá sendan hlekk á fundinn þegar nær dregur.