Fulltrúaráðsfundur 25. nóvember

Stjórn Stapa boðar til rafræns fundar fulltrúaráðs, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 16:30.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar, þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 27. apríl sl. sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem að sjóðnum standa.

Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

    1. Lykilatriði úr rekstri sjóðsins 2026
    2. Fjárfestingarstefna 2027
    3. Önnur mál

Fulltrúar fá sendan hlekk á fundinn þegar nær dregur.