Fréttir af ársfundi sjóðsins

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn miðvikudaginn 3.maí í Menningarhúsinu Hofi. Mæting á fundinn var góð en sjóðfélögum var einnig gefinn kostur á að fylgjast með fundinum í vefútsendingu. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.

Erla Jónsdóttir stjórnarformaður flutti skýrslu stjórnar og Jóhann Steinar Jóhannsson framkvæmastjóri fór yfir ársreikning og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu. Þá fór Brynjar Þór Hreinsson, forstöðumaður eignastýringar, yfir fjárfestingarstefnu og ávöxtun það af er ári 2023 ásamt því að gera grein fyrir hluthafastefnu sjóðsins.

Á fundinum voru lagðar fram óvenju margar tillögur að breytingum á samþykktum sjóðsins, sumar hverjar lítilsháttar orðalagsbreytingar meðan aðrar voru umfangsmeiri og tilkomnar vegna mótvægisaðgerða nýs spálíkans um lífslíkur. Áður en samþykktarbreytingarnar voru lagðar fyrir fundinn fór Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur sjóðsins, ítarlega yfir forsendur breytinganna, uppbyggingu kerfis Stapa sem og tillögurnar. Því næst gerði Einar Ingimundarson lögmaður grein fyrir breytingunum.  Allar breytingartillögur voru samþykktar að undanskilinni seinni hluta greinar 16.1 og grein 31.1.

Farið var yfir starfskjarastefnu sjóðsins, en lagðar voru fram orðalagsbreytingar og var hún samþykkt samhljóða. Þá var einnig samþykkt tillaga að KPMG sem löggiltum endurskoðanda sjóðsins og tillaga að breytingu stjórnarlauna frá fyrra ári, í samræmi við hækkun á launavísitölu.

Stjórnarkjöri var lýst en stjórn sjóðsins var kosin á fulltrúaráðsfundi sjóðsins þann 12. apríl sl. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs skipa í dag:

Frá launamönnum:
Guðný Hrund Karlsdóttir (formaður), Björn Snæbjörnsson, Oddný María Gunnarsdóttir og Sigríður Dóra Sverrisdóttir.

Varamenn:  Ásdís Helga Jóhannsdóttir og Heimir Kristinsson. 

Frá launagreiðendum:
Elsa Björg Pétursdóttir (varaformaður), Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Kristinn Kristófersson og Valdimar Halldórsson.

Varamenn: Guðrún Ingólfsdóttir og Páll Snorrason.

Þá var í samþykkt samhljóða nefnd um laun stjórnar. Í nefndinni sitja stjórnarformaður Stapa, Borghildur Rúnarsdóttir, Jens Garðar Helgason og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir.

Gögn frá ársfundinum: