Framlenging ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán

Þeir sjóðfélagar sem hafa nýtt sér ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán þurfa nú að ákveða hvort þeir vilji halda því áfram eða ekki. 

Með lögum nr. 111/2016 hefur úrræðið verið framlengt um tvö ár en óska þarf eftir framlengingunni á vef ríkisskattstjóra www.leidretting.is fyrir lok júní 2017. Ef ekki er sótt um framlengingu fyrir þann tíma lýkur þessari ráðstöfun séreignarsparnaðar en hægt er að hefja ráðstöfun að nýju með nýrri umsókn til júní 2019.

Ríkisskattstjóri hvetur þá sem hafa nýtt sér úrræðið til að taka afstöðu.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 442-1900 og í gegnum netfangið adstod@leidretting.is.