Átt þú eftir að framlengja?

Sjóðfélagar sem hafa nýtt sér ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán þurfa nú að ákveða hvort þeir vilji halda því áfram eða ekki. Mögulegt er að framlengja virkar umsóknir með einföldum hætti fyrir lok september 2019.

Umsækjandi getur skráð sig inn á www.leidretting.is og óskað eftir að gildistími umsóknar verði framlengdur. Athugið að sækja þarf um fyrir hvern og einn einstakling, hvort sem hann er einhleypur, í hjúskap eða uppfyllir skilyrði samsköttunar.

Ef umsókn er ekki framlengd fyrir 1. október 2019 þarf sjóðfélagi að sækja um að nýju hjá Ríkisskattstjóra vilji hann greiða séreign inn á húsnæðislán eða nýta til fyrstu kaupa.

Frekari leiðbeiningar má finna í fréttatilkynningu um framlenginguna á vef RSK.