Fræðslufundir í Neskaupstað

Stapi býður sjóðfélögum á fræðslufundi um lífeyrismál í Múlanum Neskaupstað. Haldnir verða tveir fundir, þriðjudaginn 15. september kl. 17:00-18:00 og miðvikudaginn 16. september kl. 12:00-13:00

Fundirnir eru ætlaðir öllum aldurshópum en farið verður yfir allt það helsta er varðar lífeyrismál m.a.

  • Réttindakerfi sjóðsins
  • Skiptingu lífeyrisréttinda
  • Séreign og tilgreinda séreign
  • Lífeyrisgáttina
  • Umsóknir um lífeyri

Vegna takmarkaðs sætafjölda er nauðsynlegt að sjóðfélagar skrái sig á skráningarforminu hér að neðan. Vakin er athygli á að aðgangur er ókeypis.

Skráning á fund á þriðjudegi kl. 17:00

Skráning á fund á miðvikudegi kl. 12:00

Einnig er hægt að hafa samband við sjóðinn og óska eftir skráningu.

Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga gott spjall um lífeyrismál. 

Boðið verður upp á léttar veitingar.