Aukaársfundur Stapa lífeyrissjóðs

Aukaársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 22. júní 2017 kl. 13:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Dagskrá fundarins:

  •  Samþykktarbreytingar

Breyta þarf samþykktum sjóðsins svo launamenn geti frá 1. júlí nk. ráðstafað iðgjaldi umfram 12% í svokallaða tilgreinda séreign líkt og kveðið er á um í kjarasamningi ASÍ og SA frá 21. janúar 2016.

Tillögur að breytingunum verða aðgengilegar á heimasíðu sjóðsins, www.stapi.is, a.m.k. tveimur vikum fyrir fundinn.  Sé þess óskað, er hægt að fá gögnin send í pósti og skal beiðni um það send á netfangið stapi@stapi.is.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs