Ársreikningur Stapa 2020

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2020. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 295 milljarður króna og hækkaði um u.þ.b. 39 milljarða króna frá fyrra ári.

Ávöxtun eigna Stapa árið 2020 var ein sú besta í sögu sjóðsins í núverandi mynd eða sem nemur 9% raunávöxtun. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ár er um 5,1%.

Greiddir voru um 7,1 milljarðar króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins til um 10.966 lífeyrisþega. Voru þetta um 11,4% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 6,9%.

Alls greiddu tæplega 21.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 3.300 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 12,5 milljörðum króna og hækkuðu um 2,5% á milli ára. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 15.000.

Hrein eign séreignardeildar var 7.204 milljónir króna og hækkaði um 12,2% frá fyrra ári. Séreignardeildin býður upp þrjú ávöxtunarsöfn, Innlána safnið, Varfærna safnið og Áræðna safnið og nam hrein raunávöxtun safnanna -3,4%, 10,5% og  8,1% á árinu. Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar nam 190 milljónum króna í lok árs.

Hér má sjá ársreikninginn í heild sinni.

Ársfundur Stapa verður haldinn miðvikudaginn 5. maí nk. kl. 14:00.