Ársreikningur Stapa 2018

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2018. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 221 milljarður króna og hækkaði um u.þ.b. 15 milljarða króna frá fyrra ári.

Nafnávöxtun tryggingadeildar sjóðsins var jákvæð um 4,8% á árinu sem samsvarar 1,5% raunávöxtun. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ár er um 4,1%.

Greiddir voru um 5,7 milljarðar króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins á árinu til um 9.600 lífeyrisþega.  Voru þetta um 10,1% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 6,2%.

Alls greiddu rúmlega 22.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 3.200 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 11,7 milljörðum króna og hækkuðu um 19% á milli ára.  Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 15.000.

Séreignardeild sjóðsins býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir; Innlána, Varfærna og Áræðna safnið. Ávöxtun safnanna var  3 - 3,5% á árinu 2018.

Hér má sjá ársreikninginn í heild sinni.

Ársfundur Stapa verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi þann 8. maí 2019 kl. 14.