Ársreikningur Stapa 2017

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2017. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 205 milljarðar króna og hækkaði um u.þ.b. 18,2 milljarða króna frá fyrra ári.

Nafnávöxtun tryggingadeildar sjóðsins var jákvæð um 7% á árinu sem samsvarar 5,2% raunávöxtun.  Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ár er um 4%.

Greiddir voru um 5,2 milljarðar króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins á árinu til um 9.000 lífeyrisþega.  Voru þetta um 7,8% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 5,8%.

Alls greiddu rúmlega 21.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 3.100 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 9,5 milljörðum króna og hækkuðu um 14,3% á milli ára.  Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 14.400.

Séreignardeild sjóðsins býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir.  Ávöxtun safnanna var eftirfarandi:

Innlána safnið skilaði 4,2% nafnávöxtun sem svarar til 2,4% raunávöxtunar
Varfærna safnið skilaði 8,0% nafnávöxtun sem svarar til 6,2% raunávöxtunar
Áræðna safnið skilaði 7,2% nafnávöxtun sem svarar til 5,4% raunávöxtunar

Hér má sjá ársreikninginn í heild sinni.

Ársfundur Stapa verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi þann 9. maí 2018 kl. 14.