Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2025. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 462 milljarðar króna og hækkaði um 31,6 milljarð króna frá fyrra ári.
Nafnávöxtun eigna sjóðsins á árinu 2025 nam 5,6% og raunávöxtun sjóðsins 1,8%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu tíu ár er um 3%.
Greiddir voru rúmlega 13 milljarðar króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins til um 13.000 lífeyrisþega. Voru þetta um 10,5% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 3,4%.
Alls greiddu tæplega 23.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 4.000 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 19,9 milljörðum króna og hækkuðu um 5,8% á milli ára. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 16.800.
Hrein eign séreignardeildar var 10.397 milljónir króna og hækkaði um 7,2% frá fyrra ári. Séreignardeildin býður upp þrjú ávöxtunarsöfn, Innlána safnið, Varfærna safnið og Áræðna safnið og nam hrein raunávöxtun safnanna 1,3%, 2% og 1,8% á árinu. Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar nam 1.314 milljónum króna í lok árs og nam hrein raunávöxtun 1,5%.
Ársreikninginn í heild sinni má finna hér.